Hæhæ velkomin á heimasíðuna okkar!
Við erum systkinin Jón Finnur og Kristín Björk


Jón Finnur fæddist 11. febrúar 2006 kl 23:24 á Landspítalanum í Reykjavík og er sko sannkallaður keisari. Hann var 4.620 gr og 56 cm, með blá augu og hárið (það litla sem hann hafði) var dökkt en er nú ljóst. 9. apríl 2006 var hann skírður Jón Finnur í höfuðið á föðurafa sínum.
Kristín Björk fæddist 22. desember 2008 kl 22:04 á sjúkrahúsi suðurlands og er keisarynja. Hún var 3.820 gr og 53 cm með dökk augu og rosa mikið og dökkt hár. Hún var skírð 28. febrúar 2009, Kristín í höfuðið á móðurömmu sinni en Björk er út í loftið.
Pabbi okkar heitir Ólafur Þór (´80) og mamma okkar Bjarnfríður Laufey (´82) og búum við fjölskyldan á Selfossi.
Endilega kvittið í gestabókina, okkur finnst svo gaman að sjá hverjir kíkja á okkur.





Þú ert gestur nr. 9409